Undraland íss
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Undraland íss
ESP_039633_0950
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Þótt myndin sem hér sést hafi verið tekin síðla vors, sést að koldíoxíðhrím þekur enn stóran hluta yfirborðsins á svæðinu sem er á hárri breiddargráðu á Mars. Enn er nístingskuldi, mínus 128 gráður á Celsíus.

Frosttiglarnir á yfirborðinu hafa veðrast og merki um þá afmást að einhverju leyti þegar sólarljósið breytir koldíoxíðinu í gas við þurrgufun. Stærri lægðir á myndinni gera tiglana meira áberandi en mjórri sprungur sýna hvar rof hefur átt sér stað þegar koldíoxíðgas losnaði undan íslagi og bar með sér fínni efni til yfirborðsins.

Dökkleitu keilurnar á myndinni eru úr örsmáum ögnum sem sest hafa ofan á árstíðabundna íslagið. Keilurnar má rekja til sprunga og veikleika i ísnum sem gerir gasi kleyft að losna. Efnið legst niður á yfirborðið eftir vindáttinni sem ríkti þegar gasið losnaði.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: