Bungu- og hófskaflar í Newton gígnum
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Bungu- og hófskaflar í Newton gígnum
ESP_038117_1385
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Hér sést lítið sandöldusvæði á botni hins um það bil 300 km breiða Newton-gígs á suðurheli Mars.

Á myndinni sjást bæði bungu- og hófskaflar. Báðar þessar tegundir finnast líka víða á Jörðinni. Hófskaflar eru sérstaklega algengir á Jörðinni og eru venjulega sigðarlaga með brött skiðhorn og horn eða vinkla sem stefna undan vindi. Hófskaflar myndast þar sem vindátt er stöðug og eru því góðir mælikvarðar á ríkjandi vindáttir.

Í þessu tilviki eru horn hófskaflanna ekki ýkja áberandi en virðast benda til þess, að öflugustu vindarnir blási um það bil frá suðvestri til norðvesturs. Taktu eftir mynstrinu sem skaflarnir mynda í kringum ljósleita rák undan vindi, fyrir aftan gíginn á miðri mynd.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: