Árekstragígur á Isidis Planitia
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Árekstragígur á Isidis Planitia
ESP_036934_1915
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Þessi nýlega mynd er sú fimmta sem við höfum tekið af þessum sama stað á Mars. Við endurtökum gjarnan myndir af ýmsum stöðum á yfirborðinu til að fylgjast með breytingum í landslaginnu, ef einhverjar eru, vegna ýmissa ferla, til að mynda færslu sandalda.

Í þessu tilviki hafa engar breytingar komið fram, þótt nákvæmari samanburður á myndum gæti leitt eitthvað í ljós. Þess vegna höfum við tekið myndirnar frá ýmsum sjónarhornum og við ýmis birtuskilyrði, í tilraun til að draga fram nýjar upplýsingar sem eru á mörkum hins greinanlega. Þetta má gera með því að útbúa þrívíðar myndir af svæðinu við mismunandi birtuskilyrði og frá mismunandi sjónarhornum og, eftir að hafa hornaleiðrétt myndirnar, með því að skeyta þeim saman í eina mynd í „ofur-upplausn“. (Hornaleiðréttingin sýnir hvernig halli yfirborðsins birtist okkur úr lofti).

Þessar slóðir eru einnig hluti af mögulegum lendingarstað Beagle 2 kannans, byggt á mynd frá Mars Global Surveyor. HiRISE hefur tekið 24 aðrar myndir sem ná yfir stærstan hluta fyrirhugaðs lendingarsvæðis Beagle 2, en engin ummerki um kannann hafa fundist hingað til.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: