Fjaðrahryggir
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Fjaðrahryggir
ESP_036485_1765
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Á þessari ljósmynd HiRISE sést dalur fullur af alls kyns línulegum hryggjum. Hryggir af þessu tagi eru oft kallaðir þverlægir fokhryggir (e. transverse aeolian ridges eða TAR) og koma í ýmsum formum. Hér liggja þeir hornrétt á dalinn vegna þess hvernig landslagið beinir vindi meðfram lægðinni.

Á þessum slóðum hafa aðrar myndanir orðið til á sumum þverlægu fokhryggjunum, sennilega litlar gárur. Algenger að sandöldur séu þaktar litlum gárum en stefna þeirra getur verið mismunandi vegna vinda sem blása í mismunandi áttir vegna stærri sandalda. Hér eru seinni myndanirnar með óvenju geislótt og samátta mynstur svo þverlægu fokhryggirnir minna á fjaðrir í útliti.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
09 maí 2014

Staðartími á Mars:
3:32 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-3°

Lengdargráða (austur):
112°

Fjarlægð til yfirborðs:
265 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
27 cm/díl (með 1 x 1 dílaknipping) svo ~80 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
25 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
57°

Inngeislunarhorn sólar:
57°, þar sem sólin var um 33° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
128°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (824 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (481 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (440 MB),
Án kortavörpunar  (443 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (152 MB)
Án kortavörpunar  (407 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (171 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (175 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (394 MB)
Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.