Jakahrun úr setlögunum á norðurpólnum
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Jakahrun úr setlögunum á norðurpólnum
ESP_036436_2645
Enska   Franska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Setlögin á norðurpólnum eru lög úr ís og ryki við norðurpól Mars. Talið er að þau hafi myndast á milljónum ára samhliða loftslagsbreytingum sem fylgdu breytilegum möndulhalla reikistjörnunnar. Mikilvægt er að læra að lesa í þessi setlög, því þau gætu sagt okkur ótalmargt um aðstæður á Mars í nýlegri fortíð. Til þess þurfum við þó fyrst að skilja ferlin sem hafa mótað setlögin á norðurpólnum.

Samanburður á myndum HiRISE og eldri athugunum frá fyrri Marsárum leiðir í ljós dæmi um eitt þessara ferla: Jakahrun. Hlíðin er brött og sprungin á þessum slóðum og stórir, rykugir ísjakar hafa hrunið niður hlíðina og brotnað. Vísindamenn í HiRISE teyminu eru að rannsaka þetta ferli á ýmsum stöðum til að mæla hve hratt setlögin á norðurpólnum eru að breytast.

Í hlíðinni sjást líka aðrar breytingar. Sandblettir hafa hliðrast til og sumstaðar hafa þeir veðrast og myndað rákir og dældir, líklega vegna koldíoxíðshrímsins sem þekur norðurpólinn á veturna.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: