Giljadrög við miðbaug
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Giljadrög við miðbaug
ESP_034864_1825
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Giljadrög eru algengust á miðlægum breiddargráðum á Mars en finnast líka við pólana og nálægt miðbaug.

Hér sjáum við árekstragig sem er um 900 metra breiður og hefur áberandi giljadrög á öllum innri börmum sínum, nema í norðvesturhliðinni. Gígurinn myndaðist við hlið forns farvegs, svo norðvesturhlutinn hrundi ofan í farveginn þannig að hlíðarnar eru ekki eins brattar.

Þetta svæði á Mars er kallað Libya Montes, nærri miðbaug við suðurbrún Isidis árekstrardældarinnar. Þetta eru dæmigerð giljadrög með hvilftum efst, farvegum og aurkeilum neðst, en hvilftirnar eru tiltölulega litlar í samanburði við mörg önnur giljadrög á sömu slóðum á Mars. HiRISE hefur sýnt að giljadrög myndast í dag á miðlægum breiddargráðum á suðurhveli, en árstíðabundið koldíoxíðhrím eða þurrís kemur þar við sögu.

Giljadrög við miðbaug virðast fersk því á þeim eru engir gígar eða vindborið set, sem þýðir að þau mynduðust líklega tiltölulega nýlega og gætu enn verið að myndast í dag. Hér á hitabeltissvæðum Mars er of hlýtt til þess að þurrís væti og komi jarðveginum á hreyfingu, en líklega eru hlíðarnar nógu bjartar til þess að þurrísagnir hliðrist, hugsanlega með hjálp vatns í skorpunni sem dregur úr viðnáminu.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Invalid parameter for observation_ID: