Í skáldsögunni „Marsbúinn“ eftir
Andy Weir ver strandaði geimfarinn Mark Watney tíma sínum að mestu á „Ares 3“ svæðinu á suðurhluta Acidalia Planitia. Í bókinni er Acidalia lýst sem flötum og greiðfærum stað — geimfarinn ekur meira að segja að lendingarstað Pathfinder og til baka.
Í raun er svæðið mun fjölbreyttara, áhugaverðara og hættulegra en gefið er til kynna í skáldsögunni. Myndin sem hér sést var tekin skammt frá Ares 3 lendingarsvæðinu eins og það birtist á kápu skáldsögunnar. Á myndinni sjást fjölmargir hólar sem gætu verið gervigígar sem mynduðust við víxlverkun hrauns og vatns, eða leirset.
Ótal hnullungar, allt að nokkurra metra háir og því ógreiðfærir, þekja stóran hluta Acidalia Planitia. Svæðið er sprungið vegna risavaxinna melatigla og hlíðarnar eru brattar, grýttar og ófærar. Á staðnum er þéttur gígahópur í mjög grófgerðu landslagi. Þegar hetja okkar ekur yfir á Arabia Terra er landslaginu þar lýst sem grýttara en Acidalia, á meðan sú er ekki raunin: Stór hluti Arabia er rykugur og sléttur staður sem jeppinn gæti hæglega ekið um.
Almennt gera flestir ráð fyrir því að svæði sem eru slétt á stórum skala (kílómetrar) séu líka slétt á minni kvarða (frá metrum upp í tugi metra). Á Mars er hið gagnstæða oftast raunin: Stór flöt svæði eru gjarnan vindsorfnari því fína rykið fýkur burt og leiðir í ljós grófgerðara berg og berggrunninn.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason