HiPOD 19. júní 2020 
Jarđlagaskipan og sígandi sandöldur í austurhluta Valles Marineris

Jarđlagaskipan og sígandi sandöldur í austurhluta Valles Marineris
Á ţessari mynd sést suđurslétta, eggjar, svuntur úr veđruđu efni, giljadrög, sandöldur og gljúfurbotn í ţverskurđi af um ţađ bil 8 kílómetra breiđri bergopnu í Coprates Chasma.

Skriđhorn sandaldanna á vinstri helmingi myndarinnar liggja niđur á viđ í línu viđ stađbundinn halla sem bendir til ţess ađ ţćr skríđi niđur hlíđina. Ţessar „sígandi sandöldur“ er sérstökt gerđ sandalda sem stjórnast af landslaginu og verđa til ţegar giljadrög beina vindum niđur hlíđina. Sígandi sandöldur eru sjaldgćfar á Mars en eru nokkuđ algengar í austurhluta Coprates Chasma, sérstaklega í norđurhliđunum.

Vindar, setmyndun, landslag og loftslag eru allt mikilvćgir ţćttír myndun og viđhaldi sandalda. Sandinn má rekja til berglags í nágrenninu og ţrálátir vindar niđur hlíđarnar hafa vćntanlega mest um ţađ ađ segja hvers vegna ţessar sandöldur eru svona algengar á ţessum slóđum.

Ţýđing: Sćvar Helgi Bragason

númer: PSP_010277_1650
dagsetning myndatöku: 05. október 2008
hæð yfir sjávarmáli: 258 km

https://uahirise.org/hipod/is/PSP_010277_1650
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.