HiPOD 18. júní 2020 
Óseyrarmyndun í Eberswalde gígnum

Óseyrarmyndun í Eberswalde gígnum
Í Eberswalde gígnum er um 100 metra þykk berglagaopna í fremur ósnortinni óseyrarmyndun.

Þessi setmyndun inniheldur nokkra tugi af dökkum og ljósum lögum sem ganga á víxl, halla fremur lítið og eru misþykk (1–10 metrar). Landslagslíkön HiRISE sýna myndanir í þessum lögum sem hafa verið túlkaðar sem stöðuvatnaset.

Þetta óseyri er ólíkt öðrum keilulaga setmyndunum á Mars vegna vel varðveitts kvíslakerfis sem hefur meðal annars upphleypta farvegi og merki um bugður sem hafa lokast af. Í Jezero gígnum er að finna annað dæmi um keilulaga setbunka með kvíslakerfi sem gæti verið veðraðri útgáfa af samskonar kerfi og hér sést.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

númer: PSP_001336_1560
dagsetning myndatöku: 08. nóvember 2006
hæð yfir sjávarmáli: 256 km

https://uahirise.org/hipod/is/PSP_001336_1560
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.