HiPOD 17. júní 2020 
Ísjakaflóð!

Ísjakaflóð!
HiRISE hefur verið að taka myndir aftur af svæðum sem fyrst voru ljósmynduð milli 2006 og 2007 eða fyrir sex Mars-árum. Þetta gerir okkur kleift að sjá miklar og sjaldgæfar breytingar, sem og margar minni breytingar.

Eitt virkasta breytilega svæðið á Mars eru bröttu brúnirnar á setlögunum við norðurpólinn. Þessi mynd sýnir marga nýja ísjaka miðað við eldri myndir frá því í desember 2006. Hreyfimynd sýnir eitt dæmi, þar sem hluti af íshömrum hefur hrunið. Eldri myndin er ekki eins skörp og sú nýja.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

númer: ESP_054663_2650
dagsetning myndatöku: 25. mars 2018
hæð yfir sjávarmáli: 319 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_054663_2650
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.