Á þessari mynd af Arsinoes Chaos í austasta hluta Valles Marineris koma nokkrar landslagsgerðir saman. Óreiðusvæðið, þar sem öllu ægir saman, tengist líklega miklum árfarvegum sem eiga upptök sín á svæðinu og streymdu norður yfir á slétturnar á norðurhveli Mars.
Örlítið bugðótta og skakka ljósleita svæðið er úr bergstöplum (yardangs). Slíkir bergstöplar verða til við veðrun og rof sands sem fokið hefur til og agnirnar rúnað bergið.
Þegar þysjað er inn sjást sandhryggir sem liggja þvers og kruss milli bergstöplanna. Sandhryggirnir eru kallaðir þverlægir vindhryggir en hreyfast ekki nú í því loftslagi sem ríkir á Mars í dag. Þverlægu vindhryggirnir eru ráðgáta — hæð þierra er nokkurn veginn mitt á milli sandalda (sem myndast með skoppandi sandkornum) og gárur (sem myndast með „skríðandi“ eða „skvettandi“ sandkornum).
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason númer:
ESP_039563_1730dagsetning myndatöku: 04. janúar 2015
hæð yfir sjávarmáli: 267 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_039563_1730
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska