HiPOD 08. júní 2020 
Lægsti punktur Osuga Valles

Lægsti punktur Osuga Valles
Osuga Valles er um 170 kílómetrum suður af Eos Chasma, sem er við austurenda Valles Marineris gljúfrakerfisins mikla.

Um útstreymissvæði er að ræða, líklega af völdum mikils hamfaraflóðs í fyrndinni. Á myndinni sést hluti af djúpri dæld við dalsmynnið, uppfull af litlum hæðum.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason


númer: ESP_039326_1650
dagsetning myndatöku: 16. desember 2014
hæð yfir sjávarmáli: 261 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_039326_1650
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.