Markmið þessarar athugunar er að kanna ljósleitt set í landslagsgerð sem kallast „óreiðulandslag“ á botni Valles Mariners gljúfrakerfisins.
Setið hefur gróft yfirborð í samanburði við sléttlendið í kring. Sumir hlutar þess líta út fyrir að hafa orðið fyrir rofi af völdum vökva sem streymdi frá norðri til suðurs, eða hugsanlega mótuð af vindi. Þetta svæði er líka sjáanlegt á mynd Context Camera. Þetta set gæti tengst innri setlögum Valles Marineris sem menn hafa getið sér til um að gæti hafa myndast í fornu stöðuvatni.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragasonnúmer:
ESP_037545_1730dagsetning myndatöku: 31. júlí 2014
hæð yfir sjávarmáli: 268 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_037545_1730
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska