HiPOD 27. maí 2020 
Möttullandslag á miðlægum breiddargráðum á suðurhveli

Möttullandslag á miðlægum breiddargráðum á suðurhveli
Á miðlægum breiddargráðum á Mars (um það bil 30 til 60 gráður norður og suður) er mikið af ísríku möttulefni sem eru mjög misrofin.

Möttulefnið sem hér sést er talið hafa myndast sem snjóalög á tímabili þegar möndulhalli Mars var mun meiri en í dag eða fyrir um 10 milljónum ára.

Á mynd HiRISE sést svæði sem er dæmigert fyrir þetta möttulefni á suðurhveli, austur af Reull Vallis. Lægðirnar í landslaginu benda til að ísinn gufi upp úr setlögunum þegar hlýnar á svæðinu við aðstæður sem eru ríkjandi við minni möndulhalla.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason



númer: ESP_037474_1380
dagsetning myndatöku: 25. júlí 2014
hæð yfir sjávarmáli: 251 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_037474_1380
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.