Vöktun HiRISE hefur sýnt að giljadrög á Mars myndast einkum á veturna og snemma á vorin, á þeim árstímum og á þeim stöðum þar sem frost er í jörðu.
Myndin sem hér sést var tekin síðla vetrar, svo hrím eða ís (
hvítu svæðin) eru aðeins á þeim hlíðum sem snúa í suður og hafa notið lítillar sem engrar sólarbirtu hingað til.
Hryggirnir milli hvilfta giljadraganna fá meira sólarljós og virka rauðleit og að mestu hrímlaus. Ný giljadragavirkni er ekki augljós á myndinni. Hugsanlega ríkir mjög viðkvæmt jafnvægi: Sum árin, en ekki öll, hrindir hrímið (allt að 1 metra þykkt um það bil) af stað skriðuföllum. Hrímið er að mestu úr koldíoxíði (þurrís) en inniheldur líka lítið magn af vatnsís.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason
númer:
ESP_037137_1360dagsetning myndatöku: 29. júní 2014
hæð yfir sjávarmáli: 254 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_037137_1360
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska