HiPOD 26. maí 2020 
Fornt vatnaset í gíg

Fornt vatnaset í gíg
Á þessari mynd sést forvitnilegt sprungið efni á botni árekstragígs á Arabia Terra.

Farvegur liggur inn og út úr gígnum, eins og við höfum séð mynd Context Camera. Þessi farvegur, ásamt óvenjulegum setmyndunum á neðsta hluta botnsins, bendir til þess að þarna hafi eitt sinn verið stöðuvatn og það hafi myndað setlögin sem við sjáum.

Á ýktu litmyndinni sjást setlög, sum með tiglamynstrum, eins og búast má við ef um stöðuvatnaset er að ræða. Sprungur í lögunum gætu hafa orðið til þegar gígbarmurinn lét skyndilega undan svo vatnið streymdi burt.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason



númer: ESP_037122_2165
dagsetning myndatöku: 28. júní 2014
hæð yfir sjávarmáli: 296 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_037122_2165
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.