Setlögin á norðurpólnum eru lög úr ís og ryki við norðurpól Mars. Talið er að þau hafi myndast á milljónum ára samhliða loftslagsbreytingum sem fylgdu breytilegum möndulhalla reikistjörnunnar. Mikilvægt er að læra að lesa í þessi setlög, því þau gætu sagt okkur ótalmargt um aðstæður á Mars í nýlegri fortíð. Til þess þurfum við þó fyrst að skilja ferlin sem hafa mótað setlögin á norðurpólnum.
Samanburður á myndum HiRISE og eldri athugunum frá fyrri Marsárum leiðir í ljós dæmi um eitt þessara ferla:
Jakahrun. Hlíðin er brött og sprungin á þessum slóðum og stórir, rykugir ísjakar hafa hrunið niður hlíðina og brotnað. Vísindamenn í HiRISE teyminu eru að rannsaka þetta ferli á ýmsum stöðum til að mæla hve hratt setlögin á norðurpólnum eru að breytast.
Í hlíðinni sjást líka aðrar breytingar. Sandblettir hafa hliðrast til og sumstaðar hafa þeir veðrast og myndað rákir og dældir,
líklega vegna koldíoxíðshrímsins sem þekur norðurpólinn á veturna.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason númer:
ESP_036436_2645dagsetning myndatöku: 05. maí 2014
hæð yfir sjávarmáli: 318 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_036436_2645
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska