Ţennan gíg er ađ finna á Meridiani Planum, um 20 kílómetrum norđvestan viđ stađinn sem Opportunity jeppinn lenti á áriđ 2004 (og um 42 kílómetrum norđvestur af brún Endeavour gígsins, ţar sem jeppinn hefur veriđ ađ störfum undanfarin ár). Ţótt gígurinn sé í gagnstćđa átt viđ jeppann er hann samt sem áđur mjög áhugaverđur.
Gígurinn er 4 km í ţvermál og ţví stćrsti gígurinn á svćđinu fyrir utan Endeavour gíginn (22 km). Hann er líka rétt rúmlega 5 sinnum stćrri en Victoria gígurinn (0,75 km) sem Opportunity varđi nćstum tveimur árum í ađ rannsaka milli 2006 og 2008 (berđu saman viđ
TRA_000873_1780).
Hvers vegna er gígurinn áhugaverđur? Hann er mun eldri en Victoria gígurinn. Berđu til dćmis saman slétta brún gígsins viđ grófari og brún Victoria gígsins, sem er ađ veđrast. Öfugt viđ Victoria gíginn
inniheldur ţessi gígur mun meira af seti og brún hans er sléttari vegna rofs. Ţrátt fyrir aldurs- og stćrđarmun hafa gígarnir tveir og ađrir gígar á Meridiani Planum mun meira sameiginlegt. Viđ brúnir beggja eru bergopnur, svćđi međ ljósum sandsköflum á gígbotninum og dökkur sandur sem hefur safnast saman viđ innri norđurbrúnina og nćr til norđvesturs á slétturnar í kringum gíginn.
Ţýđing:
Sćvar Helgi Bragason númer:
ESP_036397_1785dagsetning myndatöku: 02. maí 2014
hæð yfir sjávarmáli: 269 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_036397_1785
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska