HiPOD 16. maí 2020 
Efnisflutningur á stapa

Efnisflutningur á stapa
Á þessari mynd sést einhvers konar efnisflutningur niður hlíð á stapa á Deuteronilus Mensae. Við dalsmynnið sést líka bogalaga hryggur.

Þessi hryggur gæti verið jökulgarður. HiRISE gæti mögulega greint það ef yfirborð jökulgarðsins er grófara en efnið fyrir framan hrygginn.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

númer: ESP_036382_2255
dagsetning myndatöku: 01. maí 2014
hæð yfir sjávarmáli: 300 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_036382_2255
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.