Hér sést árekstragígur sem hraun rann í gegnum á Elysium Planitia svæðinu á Mars. Grunnur og tiltölulega flatur botnn, gróf áferð yfirborðsins og mögulegar kólnunarsprungur virðast benda til þess að gígurinn hafi að hluta til fyllst af hrauni. Norðurhluti myndarinnar sýnir einnig umfangsmeira hraun sem umlykur efnisslettu stærsta árekstragígsins á myndinni.
Í hvaða átt rann hraunið? Svo gæti virst að hraunið hafi runnið frá norðri í gegnum farveginn og inn í gíginn sem að hluta til er fylltur.
Ef þú skoðar hins vegar þrívíddarmyndina með rauðum og bláum gleraugum sést að hlutfyllti gígurinn liggur ofan á efnisslettu stærri gígs sem og liggur því hærra en hraunið í norðir. Hraun rennur ekki upp á við svo skýringin er ekki svona einföld.
Við höfum fundið töluvert af sönnunargögnum sem benda til þess að hraun á svæðinu hafi runnið yfir á staði sem liggja hærra en yfirborðið í dag, en hafi síðan hjaðnað eða runnið burt. Hér gæti eftirfarandi hafa gerst: Hraun rann frá norðri til suðurs, fyllti gíginn að hluta en gekk síðan til baka til norðurs og svarf farveginn.
Landslagsupplýsingarnar sem við fáum úr þrívíddarmyndum gera okkur kleift að svara spurningum sem við ella gætum ekki út frá aðeins einni mynd. Þetta er gott dæmi um það hvers vegna við tökum þrívíddarmyndir.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason
númer:
ESP_035969_1825dagsetning myndatöku: 30. mars 2014
hæð yfir sjávarmáli: 272 km
https://uahirise.org/hipod/is/ESP_035969_1825
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska