HiPOD 21. júní 2020 
Gígar í ísilögðu yfirborði

Gígar í ísilögðu yfirborði
Litlir árekstragígar hafa venjulega einfalda skálarlögun en ef yfirborðið er óvenjulegt geta flóknari form stundum myndast. Gígurinn á miðri HiRISE myndinni er óvenjulegur, því milli ytri brúnarinnar og innri barmanna er breiður, flatur stallur sem lætur hann líta nokkurn veginn út eins og skotmark.

Gígar geta orðið þannig í laginu ef efnið undir yfirborðinu breytist úr mjúku í stökkt. Í þessu tilviki sýna stallarnir þessa breytingu. Á svæðinu sem þessi mynd nær yfir höfum við aðrar ástæður til að gruna, að efra efnið sé að mestu leyti ís.

Gígar með stöllum eins og þessi sýnir okkur hve þykkur ísinn er, svo stallamyndunin sýnir hvar mörk íssins og bergsins fyrir neðan eru.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason

númer: ESP_035189_2240
dagsetning myndatöku: 28. janúar 2014
hæð yfir sjávarmáli: 302 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_035189_2240
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.