HiPOD 07. júlí 2020 
Lotubundin setmyndun í Tithonium Chasma

Lotubundin setmyndun í Tithonium Chasma
Ţessi HiRISE mynd, sem er af austurhlíđ í Tithonium Chasma, var tekin til ađ fylgja eftir eldri myndum frá Context Camera sem virtust sýna nokkur setlög međ nćrri jafna ţykkt.

Setlögin eru dökku og ljósu rákirnar sem liggja skáhallt yfir miđja mynd. Á myndinni leiđir síđdegisbirtan frá sólinni í ljós fíngerđa hryggi sem stefna í austur-vestur á austurhlíđinni. Dökku og ljósu rákirnar virđast sveigja til austurs (niđur á viđ) yfir hryggina. Í augum jarđfrćđings sýnir mynstur ţessarar bergopnu, ađ gömlu setlögin halla minna en hlíđin sjálf gerir í dag. Frekari túlkun á myndinni gćti skoriđ úr um hvort í lögunum leynist upplýsingar um fornar loftslagsbreytingar á Mars.

Ţýđing: Sćvar Helgi Bragason

númer: ESP_034132_1750
dagsetning myndatöku: 07. nóvember 2013
hæð yfir sjávarmáli: 264 km

https://uahirise.org/hipod/is/ESP_034132_1750
NASA/JPL-Caltech/University of Arizona
#Mars #NASA #Icelandic #íslenska

Svarthvítar myndir eru innan við 5 km á breidd, falslitamyndir innan við 1 km.