Í febrúar tók HiRISE nýja mynd af Perseverance jeppanum sem þá var um 700 metra frá þeim stað sem hann lenti á með tilþrifum.
Jeppinn ekur ekki bara beint áfram heldur hefur hann farið víða frá lendingu. (Slóðinn eftir hann sést vel). Myndir eins og þessar frá HiRISE hjálpa stjórnendum jeppans að velja bestu leiðina að áfangastöðum hans og setja umhverfið í Jezero gígnum í samhengi.