Hausthrím leggst á sandöldur í Russell gígnum
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Hausthrím leggst á sandöldur í Russell gígnum
ESP_034234_1255
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880


Sandöldurnar í Russell gígnum eru með eftirlætis viðfangsefnum HiRISE, því myndirnar eru ekki aðeins óhemju fallegar, heldur gera þær okkur kleift að mæla ákomu hríms á haustin, ár eftir ár, og fylgjast með því hverfa á vorin.

Hrímið er vitaskuld koldíoxíðís sem oft og tíðum þurrgufar (fer beint úr föstu formi í gas) að vori á Mars. HiRISE ljósmyndar sömu svæði á Mars ítrekað til að rannsaka árstíðabreytingar eins og þessa. Á stöðum eins og í Russell gígnum — ævafornum 140 kílómetra breiðum árekstragíg — getum við fylgst náið með breytum í landslaginu með því að bera saman myndir teknar á mismunandi tímum. Það hjálpar okkur að öðlast betri skilning á virkum ferlum á Rauðu plánetunni.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
15 nóvember 2013

Staðartími á Mars:
3:08 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-54°

Lengdargráða (austur):
13°

Fjarlægð til yfirborðs:
254 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
51 cm/díl (með 2 x 2 dílaknipping) svo ~152 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
50 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
88°

Inngeislunarhorn sólar:
84°, þar sem sólin var um 6° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
50°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (278 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (166 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (131 MB),
Án kortavörpunar  (164 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (59 MB)
Án kortavörpunar  (134 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (259 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (240 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (115 MB)
Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.