Ferðalag Opportunity jeppans við Endeavour gíginn
NASA/JPL-Caltech/UArizona
Ferðalag Opportunity jeppans við Endeavour gíginn
ESP_032573_1775
Enska   

twitter 

WALLPAPER
800
1024
1152
1280
1440
1600
1920
2048
2560
2880

HIFLYER
PDF, 23 x 48 cm

HISLIDES
PowerPoint
Keynote
PDF

Í um það bil tvö ár hefur Opportunity jeppinn unnið að rannsóknum á 3-4 milljarða ára gömlum setlögum í Cape York á vesturbarmi Endeavour gígsins, sem er 20 kílómetra breiður, á Meridiani Planum. Nú, meira en áratug eftir að Marsjeppanum Opportunity var skotið á loft árið 2003, hefur HiRISE tekið mynd af ferðalagi jeppans í átt að nýjum rannsónarstöðum í suðri, að Solander Point þar sem hann mun hafa vetursetu.

Á áfangastað Opportunity á Solander Point er talið að mikið sé af leir (eins og rannsóknir úr lofti benda til) og bergopnur sem leiða í ljós jarðlög sem munu án efa veita mikilvægar upplýsingar um sögu vatns á Mars í fortíðinni. Auk þess mun veturseta jeppans á norðurhlíð Solander Point tryggja að hann fái sem mesta sólarorku svo hægt verði að stunda öflugar vísindarannsóknir á meðan veturinn á suðurhvelinu stendur yfir.

Í rúmlega níu ár hefur Opportunity rannsakað ung setlög í Eagle gígnum, Endurance gígnum og Victoria gígnum. Eftir að hafa ekið þvert yfir Meridiani sléttuna til Endeavour gígsins, hefur Opportunity ekið lengst allra geimfara á öðrum hnetti í geimkönnunarsögu Bandaríkjanna, meira en 36 kílómetra.

Þýðing: Sævar Helgi Bragason
 
Dagsetning myndatöku:
08 júlí 2013

Staðartími á Mars:
2:15 PM

Breiddargráða (miðjuð):
-2°

Lengdargráða (austur):
355°

Fjarlægð til yfirborðs:
269 km

Kvarði upprunalegu myndarinnar:
27 cm/díl (með 1 x 1 dílaknipping) svo ~81 cm breiðir hlutir sjást

Kvarði kortavörpunar:
25 cm/díl

Kortavörpun:
Equirectangular (og norður snýr upp)

Útgeislunarhorn:


Fasahorn:
29°

Inngeislunarhorn sólar:
34°, þar sem sólin var um 56° yfir sjóndeildarhring

Sóllengd:
348°

JPEG
Gráskali
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB litur:
Kortavörpun  Án Kortavörpunar

IRB blandað:
Kortavörpun

RGB blandað:
Kortavörpun

RGB litur:
Án Kortavörpunar

JP2 (NIÐURHAL)
Gráskali:
Kortavörpun (421 MB)

IRB litur:
Kortavörpun (234 MB)

JP2 EXTRA
Gráskali:
Kortavörpun  (165 MB),
Án kortavörpunar  (252 MB)

IRB litur:
Kortavörpun  (52 MB)
Án kortavörpunar  (203 MB)

IRB blandað:
Kortavörpun  (110 MB)

RGB blandað:
Kortavörpun  (105 MB)

RGB litur:
Án kortavörpunar  (205 MB)
Aukaupplýsingar um mynd
Lýsigögn gráskala
Lýsigögn litmynda
Lýsigögn blandaðs IRB
Lýsigögn blandaðs RGB
EDR myndir

Myndir
Hægt er að draga alla myndahlekki yfir í HiView eða smella á þá til að sækja

Notkun á myndum
Allar ljósmyndir frá HiRISE sem aðgengilegar eru á þessari síðu, eru í almannaeigu og njóta því ekki höfundarverndar: Engin takmörk eru sett á notkun þeirra, hvorki meðal almennings, fjölmiðla eða vísindastofnana. Við óskum aðeins eftir að myndhöfunda sé getið, ef mögulegt er:
Mynd: NASA/JPL-Caltech/UArizona

Eftirskrift
Jet Propulsion Laboratory NASA, deild innan California Institute of Technology í Pasadena í Kaliforníu, hefur umsjón með stýringu Mars Reconnaissance Orbiter fyrir hönd NASA Science Mission Directorate í Washington. HiRISE myndavélin var smíðuð hjá Ball Aerospace and Technology Corporation en er starfrækt af University of Arizona.