Þessi mynd er hluti af röð litaræma sem HiRISE hefur tekið til að hjálpa Curiosity jeppanum að aka um yfirborð Mars í framtíðinni.
Á nærmyndinni (þar sem búið er að ýkja litinn) sést áhugaverður hluti þessa svæðis, í lægri hlíðum róta Sharpfjalls þar sem jeppinn gæti rannsakað setlög með ýmsar berggerðir. Dekkstu svæðin marka lög lauss sands sem borist hefur með vindi. Bláu litirnir sýna oftast hvar finna má óbreyttar storkubergssteindir en hlýrri litir sýna ummyndaðar steindir.
Tilraunirnar sem jeppinn mun gera, geta vitt okkur miklu nákvæmari upplýsingar um efnasamsetninguna og þar af leiðandi hvað þær hafa að segja um jarðsögu Mars.
Þýðing:
Sævar Helgi Bragason